Þarftu greiningu strax? Eða föður- eða þokugensgreiningu?

Vantar þig arfgerðargreiningu sem allra fyrst?

Þá er enn hægt að nýta sér „hraðþjónustu“ Agrobiogens í Þýskalandi. Venjulega er hægt að fá 1-sæta-greiningu (sætin 136/137/138 eða sætin 151/154 eða sæti 171) innan sólarhrings og 6-sæta-greiningu innan 2 sólarhringa (á virkum dögum). Verð: 11,50 evrur og 16,50 evrur (um 1.700 kr og 2.500 kr). Við þurfum bara að finna leið til koma sýnunum út (en þetta leysist einhvern veginn).

Einnig bjóða þau upp á „föðurgreiningu“ ef faðirinn (eða móðirin) er óljós – kostar um 27 evrur (4.000 kr).

Síðast en ekki síst er hægt að þokugensgreina gripi þar – kostar 18 evrur (2.700 kr).

Best að hringja í mig ef þú vilt nýta þér eitthvað af því (ég er í símaskránni).