Línubrjótar
Línubrjótar eru gripir, sem hafa sjálfir farið yfir varnarlínur. Áður fyrr var þeim alltaf lógað. Það breyttist þegar verndandi og mögulega verndandi arfgerðir voru skilgreindar, og samkvæmt nýjum reglugerðum er fyrirkomulagið núna enn einfaldara.
Það er heimilt að flytja fé, sem farið hefur yfir varnarlínur, til baka til síns heima án sérstaks leyfis frá MAST, ef eftirfarandi skilyrði eru uppfyllt:
- Gripurinn er með R171/x, T137/x, C151/x eða H154/x, en x er ekki V136 (= VRQ).
- Varnarhólfið sem gripurinn hefur farið yfir í, sé með jafna eða betri sjúkdómastöðu með tilliti til riðuveiki en það varnarhólf sem hún á sinn uppruna í (nema ef hann er með R171/R171)
- Undantekning: Ef uppruni gripsins er á líflambasölusvæði, má ekki flytja hann til baka.
Móttakandi gripsins, sem var fluttur til síns heima, verður að senda tilkynningu á MAST í gegnum þjónustugátt um flutninginn innan tveggja sólarhringa frá því flutningur fór fram (eyðublað sjá hér).