Umsóknareyðublöð (MAST)
Nýtt er að eingöngu seljandinn þarf yfirleitt að vera með leyfi ef um leyfisskylda flutninga er að ræða, en ekki kaupandinn (en kaupandinn þarf að fullvissa sig um að seljandinn sé með gilt söluleyfi). Örfáar undantekningar eru frá þessari reglu – sjá neðar.
Hvernig sækirðu um? Það virkar þannig (staða: 24.4.2026):
- farðu inn í þjónustugátt MAST -> umsóknir
- skráðu þig inn
- þá birtist listi yfir ýmis umsóknareyðublöð – veldu „02 Dýrahald“
- til að sækja um söluleyfi, notar þú eyðublaðið
- 2.11 ef þú ert á líflambasölusvæði
- 2.55 ef þú ert á riðubæ
- 2.46 ef þú ert á áhættubæ (listi yfir áhættubæi finnst hér)
- 2.54 ef þú ert á „öðrum bæ“ í áhættuhólfi
- til að sækja um kaupaleyfi fyrir fé úr líflambasölusvæði sem er af sérstökum stofni, en án græns flaggs, verður einnig til eyðublað (í vinnslu hjá MAST)
- til að sækja um kaupaleyfi fyrir R171/R171-líflömb á milli líflambasölusvæða, verður einnig til eyðublað (í vinnslu hjá MAST)
- til að sækja um flutning fjár með R171/x á afrétt eða sameiginleg beitilönd (þarf eingöngu ef þú ert á ríðubæ), notar þú eyðublaðið 2.56
- til að sækja um kaupaleyfi til að flytja fé á milli áhættuhólfa, sendirðu tölvupóst á sigurbjorg.bergsdottir [hjá] mast.is
Umsóknarfrestur er til og með 1. júlí hvert ár. MAST samþykkir eða hafnar umsókninni fyrir 15. september. Söluleyfið er ekki tímabundið, en seljandinn þarf að uppfylla eftirfarandi skilyrði:
- Eðlilegur fjöldi fullorðins fjár skal hafa verið sendur úr hjörðinni í sláturhús eða hausum skilað inn til sýnatöku vegna riðuveiki undanfarin sjö ár.
- Skráningar í hjarðbók (Fjárvís/Heiðrún) séu og hafi verið fullnægjandi í sjö undangengin ár er varðar eftirfarandi þætti:
- merkingar fjárins,
- flutninga fjár til og frá bænum,
- sjúkdóma og lyfjanotkun.
- Engin útistandandi alvarleg frávik séu skráð í eftirlitskerfi hjá Matvælastofnun.