Flokkun hólfa; hvaða arfgerðir eru „söluvara“?

Staða: 24.4.2026. Ný reglugerð um riðuveiki hefur tekið gildi (sjá hér). Auk þess hefur ný reglugerð um flutning yfir varnarlínur tekið gildi. Þar með komu róttækar breytingar til sögu.

Hvaða arfgerðir teljast sem „söluvara“, fer eftir varnarhólfi – bæði hólfi seljandans og hólfi kaupandans. Smáatriði eru líka útskýrt hér.

Í stuttu máli er eftirfarandi flokkun hólfa í gildi:

  1. Líflambasölusvæði – til þessara svæða teljast varnarhólf sem aldrei hefur greinst riða og garnaveiki hefur ekki greinst síðastliðin 10 ár. Smitálag vegna riðuveiki á aðliggjandi sóttvarnarsvæðum skal einnig vera lítið. 
  2. Hólf sem eru ekki áhættuhólf – til þessara svæða teljast varnarhólf þar sem riða hefur ekki fundist sl. 7 ár.
  3. Áhættuhólf – til þessara svæða teljast varnarhólf þar sem riða hefur greinst á sl. 7árum og ekki er gerður greinarmunur á sýktum og ósýktum svæðum innan hólfsins. Innan hólfa er greinarmunur á „riðubúum“ og „áhættubúum“ (með bein tengsl við riðubú).

Hvaða hólf tilheyrir hvaða flokk, sést á þessu korti.

Í grófum dráttum má selja eftirfarandi arfgerðir eins og hér segir:

  • innan líflambasöluhólfa (Snæfellsneshólfi, Vestfjarðarhólfi eystra, Norðausturhólfi (norðurhluta) og Öræfahólfi):
    • allar arfgerðir, en mælst hefur verið til þess beint við bændur að ekki sé verslað með kindur með VRQ genasamsætuna
  • á milli líflambasöluhólfa (Snæfellsneshólfi, Vestfjarðarhólfi eystra, Norðausturhólfi (norðurhluta) og Öræfahólfi):
    • eingöngu líflömb með V/V (þ.e. ARR/ARR í dag) – leyfisskylt (kaupandinn sækir um)
  • innan hólfa þar sem riða hefur komið upp fyrir meira en 7 árum:
    • allar arfgerðir nema með VRQ
      Athugasemd KE: Það hefur þónokkrum sinnum komið upp riða aftur á sama bæ eftir meira en 40 eða jafnvel 60-70 ára „riðupásu“; ég mæli þess vegna með að vera á varðbergi í þessum hólfum og reyna sem mest að sneiða framhjá VRQ/VRQ-, VRQ/ARQ- og ARQ/ARQ-gripum.
  • úr líflambasöluhólfum inn í önnur hólf:
    • inn í áhættuhólf (nema ef um sérstaka erfðaeiginleika sé að ræða, t.d. forystufé, feldfé o.s.frv. – í þessu tilfelli má kaupandinn sækja um undanþágu, sjá hér):
      • R171/x (ef x er ekki VRQ)(R171=ARR)
      • T137/x (ef x er ekki VRQ)
      • C151/C151
      • H154/H154 = AHQ/AHQ
      • C151/H154 = C151/AHQ
    • inn í hólf sem eru ekki áhættuhólf:
      • allar arfgerðir með a.m.k. eitt grænt flagg, þ.e. R171, T137, C151 eða H154 – nema með VRQ;
  • úr hólfum, sem eru ekki áhættuhólf, inn í önnur hólf:
    • R171/x (ef x er ekki VRQ)(R171=ARR)
    • T137/x (ef x er ekki VRQ)
    • C151/C151
    • H154/H154 = AHQ/AHQ
    • C151/H154 = C151/AHQ
  • innan áhættuhólfa:
    • R171/x (ef x er ekki VRQ)(R171=ARR)
    • T137/x (ef x er ekki VRQ)
    • C151/C151
    • H154/H154 = AHQ/AHQ
    • C151/H154 = C151/AHQ
  • innan áhættuhólfa frá riðubæjum eða áhættubæjum:
    • R171/R171
    • R171/MV (MV=T137, C151, H154)
    • MV/MV
    • riðubæir mega eingöngu flytja til annara riðubæja,
    • áhættubæir eingöngu til riðubæja og annara áhættubæja
  • á milli áhættuhólfa:
    • ekki leyfilegt, en kaupandinn getur sótt um undanþágu (sjá hér).

Mikilvægt:

  • Grundvallarbreytingar áttu sér stað með nýjum reglugerðum – sjá hér.
  • Sú regla gildir að leyfi fæst til þess að selja af minna sýktu svæði yfir á meira sýkt, en ekki öfugt.
  • Muna þarf eftir því að bæir á svæðum þar sem bólusett er gegn garnaveiki mega ekki selja til aðila á svæðum þar sem ekki er bólusett.