Varnarhólf (kort)

Upplýsingar um flokkun hólfa m.t.t. riðuveiki o.s.frv. eru að finna hér – svo sýnir kortið hér fyrir neðan stöðuna eins og hún er í dag.

Kaupendur þurfa ekki lengur að sækja um leyfi, nema ef um eftirfarandi gripi er að ræða:

  • líflömb með R171/R171 (R171=ARR) á milli líflambasölusvæða
  • fullorðna gripi yfir varnarlínur
  • gripi með ARQ/ARQ, N138/ARQ eða N138/N138 úr líflambasölusvæðum inn í áhættuhólf
  • gripi á milli áhættuhólfa (eingöngu með undanþágu frá MAST)

Nánari upplýsingar finnast hér.

Óformlegur listi yfir T137-sölubú finnst hér.

Varnarhólf

Varnarlínurnar (og einnig mörkin á milli mismunandi merkjasvæði, sem eru yfirleitt fyrrverandi varnarhólf) eru mjög gróf á kortinu; nákvæmar textalýsingar línanna koma fram í auglýsingum varnarhólfa á meðan varnarhólfin voru fleiri:

  • hér – staða 2018
  • hér – staða 2009
  • hér – staða 2005 sem endurspeglar líklega best merkjalitasvæðin

Lýsingar aðalvarnarlína sem eru í gildi síðan 22. maí 2025 koma fram hér. Þessi staða sést einnig á MAST-Íslandskorti – ýta á þessa slóð, velur „Ýmis mörk“ og hakar svo við „sauðfjárveikivarnarhólf“ (nöfn hólfanna koma ekki fram, eingöngu mörkin).

Kortið er uppfært þegar eitthvað breyttist. Staða: 5. janúar 2026