Forystufé: hvað finnst þar?

Til þessa hafa eingöngu þrír breytileikar fundist í „hreinræktuðu“ forystufé:

  • ARQ, villigerðin – langstærsti hluturinn
  • V136 (VRQ) – hlutfallslega oftar en í venjulegu fé
  • H154 (AHQ) – eins oft og í venjulegu fé

Það eru til forystublendingar með góða forystueiginleika, sem eru með T137 (sjá t.d. hvita lambhrútinn, skyldleikaræktaðan út frá Nikulási frá Brakanda) og með N138 (sjá Auði Seladóttur Nikulássonar ásamt Steinunni Steinríksdóttur, sem eru báðar með N138). Nýlega fannst hrútur úr Þistilfirði með C151 – hér er enn óljóst hvort venjulegt fé er að finna einhvers staðar aftar í ættinni. Vorið 2024 komu í heiminn fyrstu ARR-forystublendingar með því markmiði að hækka formlega forystuhlutfallið jafnt og þétt þangað til hreinræktað forystufé með þennan breytileika er orðið til.