Varnarhólf (kort); listar yfir líflambasölubú
Söluaðilar lamba (og kiða) á líflambasölusvæðunum (Snæfellsneshólf [ath: garnaveikihólf! Sjá meira hér], Vestfjarðarhólf eystra, Norðausturhólf, Öræfahólf)
Söluaðilar lamba á öðrum svæðum með verndandi/mögulega verndandi arfgerðir munu koma fram á heimasíðu MAST, þegar listinn hefur verið uppfærður (umsóknarfresturinn rennur út 1. júlí og ákvarðanir teknar í síðasta lagi 15. september) – ath: ólíkt söluaðilum á líflambasölusvæðum er það misjafnt,
- í hvaða hólf eða svæði þeir mega selja og
- hvaða arfgerðir þeir mega selja – nánar sjá hér.
Því er best að hafa samband við viðkomandi söluaðila áður en þú hugsar lengra. Upplýsingar um flokkun hólfa o.s.frv. eru að finna hér – svo sýnir kortið hér fyrir neðan stöðuna eins og hún er í dag.
Kaupendur þurfa ekki lengur að sækja um leyfi, nema ef um eftirfarandi gripi er að ræða:
- líflömb með R171/R171 (R171=ARR) á milli líflambasölusvæða
- fullorðna gripi yfir varnarlínur
- gripi með ARQ/ARQ, N138/ARQ eða N138/N138 úr líflambasölusvæðum inn í áhættuhólf
- gripi á milli áhættuhólfa
Óformlegur listi yfir T137-sölubú finnst hér.
Varnarhólf
Varnarlínurnar (og einnig mörkin á milli mismunandi merkjasvæði, sem eru yfirleitt fyrrverandi varnarhólf) eru mjög gróf á kortinu; nákvæmar textalýsingar línanna koma fram í auglýsingum varnarhólfa á meðan varnarhólfin voru fleiri:
Lýsingar aðalvarnarlína sem eru í gildi síðan 22. maí 2025 koma fram hér. Þessi staða sést einnig á MAST-Íslandskorti – ýta á þessa slóð, velur „Ýmis mörk“ og hakar svo við „sauðfjárveikivarnarhólf“ (nöfn hólfanna koma ekki fram, eingöngu mörkin).
Kortið er uppfært þegar eitthvað breyttist. Staða: 5. janúar 2026
