Ný reglugerð – nýtt kort
Eitt kort enn! Í gær tók ný reglugerð um riðuveiki gildi sem leiðir að ýmsum breytingum. M.a. styttist tímabilið frá 20 ár niður í 7 ár eftir síðasta riðutilfellið, sem ræður hvort í ákveðnu hólfi eru takmarkanir í gildi („áhættuhólf“). Þessi nýjung hefur áhrif á eitt hólf (Skeiða-, Hreppa- og Flóahólf), sem er laust við takmarkanir 4 árum fyrr en ella.
Rúmlega 30% sauðfjárstofnsins er áfram staðsett í áhættuhólfum (sjá rauðröndótta svæðið).
Á kortinu fyrir neðan sést síðasta riðutilfellið í hverju hólfi þar sem riða hefur komið upp síðustu 20 ár. Fyrrverandi hólf með eigin eyrnamerkjalit koma fram sér. Nýjasta sameiningin hólfa átti sér stað í vor – Vatnsneshólfið og Skaga- og Húnahólfið mynda núna eitt stórt Norðvesturlandshólf, þannig að riðutilfelli í kringum Varmahlíð hafa bein áhrif líka á Vatnsnes.
Umfangsmiklar umsagnir bárust um drögin reglugerðarinnar (sjá hér, neðst á viðkomandi síðu – 9 umsagnir samtals), en lokaútfærslan er mjög lík drögunum (sjá hér).
