Umsóknareyðublöð: kaupaleyfi, söluleyfi (MAST)

Hvernig sækirðu um? Það virkar þannig (staðan ágúst 2024):

  • fara inn í þjónustugátt MAST -> Tilkynningar og umsóknir
  • skrá sig inn
  • þá birtist listi yfir ýmis umsóknareyðublöð
  • til að sækja um söluleyfi, notar þú eyðublaðið 2.11; ef þú ert ekki á líflambasölusvæði, lýsir þú í reitnum „Athugasemdir umsækjenda“ neðst á blaðinu, hvaða arfgerðir þú ætlar að selja
  • á vorin verður væntanlega aftur aðgengilegt sérstakt eyðublað varðandi sölu á öðrum svæðum en líflambasölusvæðum; þar þarf að sækja um aftur á hverju ári
  • til að sækja um kaupaleyfi, notar þú eyðublaðið
    2.09 (til að kaupa á líflambasölusvæðum) eða
    2.45 (til að kaupa á öðrum svæðum)

Eyþór Einarsson (RML) er búinn að birta grein um líflambakaup og ræktunarstefnu (22.7.24) sem kemur með allar helstu upplýsingar.

Varðandi T137/ARQ og T137/N138

Ef þú ert í Tröllaskaga-, Húna- og Skaga-, Vatnsnes- eða Miðfjarðarhólfi, er líklegt að söluleyfið þitt mun hvorki innihalda T137/ARQ né T137/N138, heldur eingöngu „grænar“ samsetningar (MV/V eða MV/MV). Ef svo er og ef þú vilt selja slíka gripi, sæktu um aftur með eyðublaðinu 2.11 og láttu í reitnum „athugasemdir“ koma fram:

  • málsnúmerið núverandi söluleyfis og
  • að þú sækir um undanþágu til að mega flytja T137/ARQ (og T137/N138 ef þú átt margt af því) og
  • varnarhólfin sem þú vilt flytja í.

Ath.: Til að takmarka smithættu, ætti ekki að taka til greina flutning í „betur sett“ varnarhólf (þótt það hafi verið leyfilegt í fyrra). Þ.e. úr Tröllaskagahólfi, Húna- og Skagahólfi, Vatnsneshólfi eða Miðfjarðarhólfi ætti eingöngu að flytja innan sama hólfs eða – ef sérstakar ástæður liggja fyrir – á milli þessara hólfa, en ekki út úr þeim t.d. í hólf á Suður- eða Austurlandi.

Umsóknarfrestar hafa verið breytilegir síðustu árin. Niðurstöður úr arfgerðargreiningum liggja ekki alls staðar fyrir í tæka tíð, en þær skipta máli bæði fyrir seljendur (hvað er í boði?) og fyrir kaupendur (hvað vantar mig?). Ekki síst veit bóndinn ekki fyrr en eftir réttir hvort allir tilvonandi ræktunargripir hafa skilað sér frá fjallinu og hvort þeir verða nothæfir.

Óháð öllum frestum er gott að vita að það má alltaf að senda rökstuddan tölvupóst á Sigurbjörgu Bergsdóttur, ef „óvænt“ sala eða kaup er nauðsynlegt eftir að umsóknarfresturinn rann út: sigurbjorg.bergsdottir[hjá]mast.is