Brautryðjandi: PMCA-næmispróf

Ótrúlegt en samt satt – það er hægt að líkja eftir riðusmitferli, sem tekur marga mánuði eða jafnvel ár, í tilraunaglasi á tveimur sólarhringum. Eftir það er hægt að framkvæma hefðbundna riðugreiningu með Western Blot. Á þennan hátt er hægt að rannsaka næmi ákveðna arfgerða á mjög skilvirkan hátt. Mikilvægt er að bera þessar niðurstöður, sem urðu til „in vitro“ (í tilraunaglasi), við íslenska raunveruleikann „in vivo“ (í raunverulegum riðuhjörðum). Ef niðurstöðurnar eru samhljóma – sem er tilfelli í viðkomandi rannsókn -, eru líkurnar afar miklar að þær endurspegla „sannleikann“.

PMCA þýðir annars „Protein misfolding cyclic amplification“ („misfolding“ er aflögun príonpróteins sem er dæmigerð fyrir riðuveiki; „amplification“ þýðir umbreyting, þ.e. riðusmit á sér stað). Verkefnisstjóri var Vincent Béringue, Frakklandi, sem kynnti niðurstöðurnar bæði í júní 2023 í Varmahlíð og lokaniðurstöðurnar haustið 2023, þegar við fórum á upplýsingarhringferð „Ræktun gegn riðu – fyrstu skrefin“.

Helstu skrefin PMCA-prófs:

  • heilabútur úr heilbrigðri kind með ákveðna arfgerð er blandaður saman við smitefni, sem er unnið úr heilabút úr riðuveikri kind
  • ákveðinn hiti og ljóðbylgjur eru notuð á þessa blöndu í 5 til 6 umferðir
  • eftir það er framkvæmd riðugreining með Western Blot
  • endurtaka þetta með öðruvísi þynningu smitefnis (samtals þremur mismunandi þynningum)
  • úrvinnsla: 3ja banda mynstur? Í öllum þynningum eða bara 1 eða 2? Hversu „svart“ er mynstrið?
  • endurtaka allt þetta þrisvar með sömu arfgerð og sama smitefnið, til að útiloka tilviljunaráhrif (3 keyrslur)

Eftirfarandi arfgerðir voru rannsakaðar á þennan hátt:

  • T137/T137
  • T137/ARQ
  • T137/H154
  • T137/ARR
  • N138/N138
  • N138/ARQ
  • N138/H154
  • C151/C151
  • C151/ARQ
  • C151/H154
  • H154/H154
  • R171/ARQ
  • R171/H154

Til samanburðar/sem mælikvarði (þekktar næmar arfgerðir):

  • ARQ/ARQ
  • VRQ/VRQ

Til samanburðar (þekktar þolnar arfgerðir):

  • ARR/ARR
  • ARR/ARQ

13 mismunandi smitefni voru notuð – hér er yfirlitskort sem Vincent bjó til eftir að hafa flokkað smitefnin eftir „sérhæfingu“ í ARQ/ARQ eða VRQ/VRQ (meira um það hér):

Og niðurstaðan lítur þannig út – 3 súlur = 3 endurtekningar/keyrslur:

Ath:

  • Hæð súlnanna sýnir hversu mikil umbreyting („smit“) átti sér stað og er þess vegna „næmismælikvarði“.
  • Ef súla er ekki með neina „framlengingarlínu“ (sem táknar sveiflur til og frá), er það betra.
  • Bláar súlur eru notaðar sem viðmið – þær sýna umbreytingar í ARQ/ARQ.
  • Grænar súlur tákna hinu arfgerðirnar; litlar grænar súlur við eina eða tvær keyrslur eru ekki ógnandi.

Helstu niðurstöður:

  • Undir vissum kringumstæðum umbreytist líka ARR (aðallega sem ARR/ARQ) – sem við vissum reyndar áður, en samt!
  • AHQ/N138 umbreytist hins vegar aldrei.
  • Best koma annars T137-arfgerðirnar út (jafnvel betra en ARR), þar á eftir C151 og H154 (AHQ) – einnig aðeins betra en ARR/ARQ.
  • N138 arfblendið með ARQ og arfhreint koma ekki eins vel út, samt er umbreytingin margfalt minni en í ARQ/ARQ.

Hægt er að hlusta á Vincent (ásamt íslenskri þýðingu) þegar hann kynnir þessar niðurstöður – hér eru upptökur fyrirlestrarins á Hvanneyri 31.10.23.

Mikilvægasta spurning þá: Hvað kemur út úr samanburðarrannsóknum þessara arfgerða (og fleira) í 14 mismunandi riðuhjörðum? Eru niðurstöðurnar samhljóma? Svarið er „já“meira um það hér.