Þessi síða er einkaframtak. Sjá neðst.
+++ Valmynd í síma: skrunaðu niður!

30. júní í Húnaveri: vísindamenn kynna nýjustu niðurstöður

Uppfærsla: Helstu niðurstöður frá fundinum eru teknar saman hér. Upptökur verða aðgengilegar 2. júlí hér.

Eins og flestir vita, hefur stór alþjóðlegur hópur leiðandi riðusérfræðinga síðan 2021 unnið að því að finna brautryðjandi lausnir fyrir landið okkar – með frábærum árangri. Og ný þekking er enn að bætast við, til dæmis:

  • Næmi: Mjög ólíkir íslenskir riðustofnar „sérhæfa“ sig í ólíkum arfgerðum – einn „ljósgrænn“ breytileiki sýnir veikleika
  • Umhverfissmit: Þrátt fyrir ítarlega sótthreinsun er smitálagið í mismunandi „riðufjárhúsum“ mjög misjafnt
  • Og margt fleira – m.a. voru
    skoðuð 28 smitefni úr flestum landshlutum,
    bornar saman 20 riðuhjarðir frá 1997 til 2023,
    mælt smit í fjárhúsum á 7 mismunandi riðubæjum og
    rannsakaðir faraldsfræðilegir áhættuþættir.

Nýjustu niðurstöðurnar verða núna kynntar opinberlega á þriðjudagskvöld, 30. júní, í félagsheimilinu Húnaveri, rétt við þjóðveginn 1.

  • Christine Fast, verkefnastjóri, kemur í eigin persónu.
  • Stefanía Þorgeirsdóttir, Keldum, mætir einnig á staðinn.
  • Vincent Béringue, sérfræðingur í næmismælingum, mætir á Zoom.
  • Jörn Gethmann, faraldsfræðingur, er einnig með á Zoom.
  • Þórður Pálsson, MAST, mætir í Húnaver.
  • Karólína Elísabetardóttir verður líka á staðnum, þýðir jafnóðum yfir á íslensku og tekur einnig saman nokkra verkþætti.

Fundarstjóri: Sigríður Ólafsdóttir, Víðidalstungu.

Við byrjum kl. 18 – í boði verður léttur kvöldverður (m.a. lífræn kindabjúgu frá Sölvanesi), og það verður nógur tími til að tala við Christine og hina sérfræðingana. Það má spyrja og ræða allt á milli himins og jarðar sem tengist riðu. Fundurinn hentar bæði „byrjendum“ og „lengra komnum“! Einnig er hægt að fá gistingu í Húnaveri.

Fundinum verður streymt:
tinyurl.com/fundur-hunaver

Hann verður líka tekinn upp:
tinyurl.com/upptokur-hunaver (aðgengilegt 2-3 dögum eftir fundinn).

Til að fá hugmynd um gestafjöldann varðandi matinn, vinsamlegast skráðu þig með tölvupósti í síðasta lagi á mánudagsmorgun, 29. júní. (Þú ert líka velkomin/n án þess að skrá þig, en þá verðum við að sjá til með matinn.)

Dagskrá (mögulega breytast tímasetningar smávegis – eftir því hvernig umræðan þróast):

18:00 Inngangsorð: Christine Fast, FLI Þýskalandi
riða (hefðb. og atýpísk) í stuttu máli
aðeins um ScIce-verkefnið sem heild

18:10 WP1a: Stefanía Þorgeirsdóttir, Keldum
breytileikar/arfgerðir á Íslandi upphaflega; stuttur samanburður við Grænland (ísl. stofn) og Evrópu (langflest kyn með mikið af ARR)
samanburðarrannsóknir (20 hjarðir – helstu niðurstöður um arfgerðirnar)
T137 á Ítalíu – samantekt rannsóknanna 2007 til 2012 (smittilraunir, samanburðarrannsóknir, PMCA-próf); eitlar 2025

18:30 WP1b: Vincent Béringue, INRAE Frakklandi
PMCA-næmispróf: nýjustu niðurstöður úr 28 smitefnum – mikill munur á milli þeirra
Erfðabreyttar T137-mýs í samanburði við ARQ/ARQ-mýs: ræktunarörðugleikar, tímaáætlun, fyrstu niðurstöður

18:45 Hlé: léttur kvöldverður, tími til að spjalla

19:30 WP2: Christine Fast
Yfirlit riðustofngreiningar, niðurstöður í samanburði: flokkun eftir „sérhæfingu“, lífefnafræðilegar rannsóknir, stofngreiningar með músum

19:50 WP3: Christine, Stefanía
smitmælingar í riðufjárhúsum, mismunandi staða varðandi sótthreinsun, helstu niðurstöður

20:10 WP4: Jörn Gethmann, FLI Þýskalandi
faraldsfræðilegar rannsóknir á Íslandi – helstu niðurstöður

20:30 Samantekt, ályktanir: Christine Fast, Karólína Elísabetardóttir
Hvað þýða þessar niðurstöður fyrir bændur og yfirvöldin?

Umræða, spurningar