Þessi síða er einkaframtak. Sjá neðst.
+++ Valmynd í síma: skrunaðu niður!

Róttækar nýjungar: reglugerð um flutning yfir varnarlínur

Þótt það sé ekki komin nein frétt hjá MAST enn, tók í síðustu viku ný reglugerð um fjárflutning yfir varnarlínur gildi (sem ég frétti af tilviljun). Furðu fáar umsagnir bárust á sínum tíma þegar drögin voru í samráðsgátt. Dæmi um mikilvægar nýjungar – nokkrar þeirra eru mjög róttækar:

  • Það þarf ekki lengur að sækja um kaupaleyfi, heldur eingöngu um söluleyfi.
  • Það er ekki lengur heimilt að flytja fé sem er ekki með V/x, MV/MV eða T137/x inn í áhættuhólf – en það er hægt að sækja um undanþágu ef t.d. um forystufé, feldfé o.s.frv. er að ræða.
  • Það er ekki lengur leyfisskylt, heldur bara tilkynningarskylt að flytja fé með V/V yfir varnarlínur (nema inn í líflambasölusvæði).
  • Líflömb með V/V má flytja á milli líflambasölusvæða (en það er leyfisskylt).

Ekki eru ný eyðublöð komin inn á MAST-heimasíðuna enn.