Nýtt: MAST getur leyft flutning á fullorðnum grip þrátt fyrir áhættuhólf
Nýju reglugerðirnar nota að hluta til orðið „fé“ í staðinn fyrir „líflömb“ í samhengi við flutning. Í þessum tilfellum er hægt að sækja um flutning á fullorðnum grip þótt innan áhættuhólfs sé – ef hann er með tvö græn flögg eða með R171/x eða T137/x (x er ekki V136). Til þess þarf að senda tölvupóst á MAST (sjá nánar hér). Þar með er hægt að nota t.d. dýrmætt en sjaldgæft erfðaefni betur en á sama tíma getur þess háttar flutningur verið varasamur.
Að vísu er slíkur flutningur alltaf heimill í „ósýktum“ hólfum, en samt er gott að hugsa sig vel um,
- af hverju það væri sérstaklega æskilegt að flytja þennan grip og
hvers vegna eftirfarandi atriði eru EKKI vandamál í viðkomandi tilfelli:
- gripurinn reynir að komast á fyrirverandi sumarbeitarsvæðið sitt (á oftast ekki við hjá hrútum)
- gripurinn ber með sér aðra smitsjúkdóma en riðu (t.d. kregðu)
- gripurinn eykur skyldleikarækt (hún á aðallega við ef t.d. um arfhreinan R171-hrút út af Þernunes-fé er að ræða)